Ratleikur og fleira

ATH! það er engin æfing í dag, það er æfing í fyrramálið klukkan 11:00 úti á gervigrasi. Á miðvikudaginn verða æfingar skv. plani.

Á laugardaginn verður ratleikur hjá flokknum og stefnt er að því að hafa hópferð í sund eftir hann. Nánari upplýsingar koma inn síðar. Látið samt vita hvort þið komist í ratleikinn.


Leikurinn gegn Val á morgun - mæting kl. 18:00 út í KR

Hópurinn á morgun er þannig skipaður
Ásdís - Kolfinna - Steffí - Guðrún - Sólveig - Marí - Soffía - Veronika - Imbó - Helga - Íris - Petra - Elín - Andrea - Marsí  - mæting er klukkan 18:00 út í KR
Mæta með sokka, legghlífar, stuttbuxur og upphitunarföt - já klárlega einnig brúsa

 

Leikurinn hefst klukkan 19:00


Fyrsti leikur á föstudaginn 30. mars

Við leikum okkar fyrsta leik í Reykjavíkurmótinu á föstudaginn kemur gegn Val.

Nákvæm tímasetning liggur ekki fyrir en reikna má með því að leikurinn hefjist á þeim óguðlega tíma kl. 19:00.

Við verðum að bíða og sjá 

nánar síðar


Ný æfingatafla - morgunæfingar hefjast í fyrramálið

Í fyrramálið byrja æfingar hjá okkur á morgnanna

Æfingar eru inni í KR-heimili og hefjast klukkan 6:45. Hefði vlijað birta þetta fyrr.

Við eigum skráðan leik gegn Val um helgina en ég hef óskað eftir frestun á þeim leik.

Meðfylgjandi er æfingaáætlunin fyrir næstu daga


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Kökubasar á Eiðistorgi á laugardag milli 12 og 18




Núna á laugardaginn verðum við kökubasar úti á Eiðistorgi á milli 12 og 18.

Við söfnum fyrir ferðinni til Danmerkur en þær sem ekki eru skráðar í ferðina eru hvattar til að taka þátt - manni má nú snúast hugur :)

Hver stúlka þarf að leggja til 2 - 3 kökur eða brauð til að selja. Voðalega gott er að henda smá dúllerí, sellófón eða smáskraut sem gerir söluvöruna meira aðlaðandi.

Þá skiptir miklu að það sé merkt hvað er í bakkelsinu - svona ef einhver er með óþol fyrir einhverju.

Þeirri sem tekst að baka girnilega köku handa mér sem inniheldur EKKI sykur, hveiti (þ.m.t. spelt og allar aðrar útgáfur af hveititegundum - utan hveitikíms) er heitið sérstökum verðlaunum. Myndin hér að neðan er sérlega girnileg.


Þær sem eru skráðar í flokkinn eru eftirtaldar:

Kolfinna, Birta, Veronika, Guðrún Þ., Íris, Marí, Imbó, Ásdís, Steffí, Ásdís, Petra, Marsí, Helga, Ragna, Elín, Soffía, Sólveig, Andrea Agla

Ef aðrar stelpur hafa áhuga á því að taka þátt þá endilega látið vita :)

Raðað verður niður í hópa og þeir birtir hér á netinu Sjúklega girnileg :)


Skráningargjald fyrir ferðina til Danmerkur

Ellefu stúlkur hafa skráð sig en ljóst er að einhverjar eiga eftir að ganga frá skráningum.

Ganga þarf frá skráningargjaldi - 20.000 kr. - sem allra fyrst og í síðasta lagi fyrir 1. mars.

Reikningur: 513-26-5343

Kennitala: 27.07.66-5289

Við erum að vinna í því að fjölga í flokknum en við þurfum að treysta á samvinnu allra, foreldra og stúlknanna.

Hlutirnir þurfa að ganga smurt :)


Æfingabók og næstu dagar

Jæja...

Ég ætla mér að vera rólegur og segja að það hafi verið ferðalög sem ollu því að mæting í dag var DRULLULÉLEG

Ég sendi ykkur öllum æfingabók 2012 og vil að þið skoðið hana mjög vel.

Þá er ég að reyna að setja hérna inn til hliðar nokkrar ábendingar sem ég vil að þið lærið vel.

Æfingar í vikunni eru sem hér segir:

Mánudag 17:00 - 18:30 - athugið breytinguna hérna.

Miðvikudag 19:00 - 20:30

Fimmtudag 17:30 - 19:00

Laugardag 10:00 - 12:00 - Kvennadagur KR


Breyting í dag

Æfingin í dag verður klukkan 16:00 en ekki 19:00

Þetta verður létt hlaupaæfing hjá Margréti.

Ástæðan er sú að það er ball í kvöld sem ég leyfi ykkur að fara á


Minni á að æfingin í dag er klukkan 17:30

Ef það mæta 16 stelpur á æfinguna í dag þá ætlar Margrét að lita hár sitt blátt :)

BUGSY MALONE

Okkur stendur til boða að fara á Bugsy Malone á morgun.

Miðinn er á 1500 kr. 

Mæting kl. 17:30 í Austurbæ

stebbikalli


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband